laugardagur, mars 10, 2007

Stríðsástand

Það hefur verið sannkallað stríðsástand í borginni undanfarna vikuna og fáir farið varhluta af því. Við fjölskyldan fylgdumst með þessu úr fjarska og komum ekkert í návígi við þessar óeirðir ef frá er talinn laugardagsmorgunin síðasti. Ég hef verið nokkuð hugsi yfir þessu öllu og nokkuð reiður þessum krökkum sem gengu berserkgang um borgina og eyðilögðu eigur saklausa borgara fyrir tugi ef ekki hundruðir milljóna króna, tjón sem borgararnir verða að stærstum hluta til að bera sjálfir. Þó að málstaðurinn göfugur og tilefnið ærið er fátt sem afskar svona hegðun, þrátt fyrir að foreldrar þessara barna taki nú upp fyrir þau hanskan, koma í fjölmiðla og kenna lögregluna um öll lætin.

Ég tók sjálfur þátt í nokkrum mótmælum hér í borginni í kringum aðdraganda Íraks stríðsins og verð að segja að lögreglumennirnir eru seinþreyttir til reiði og halda sig yfirleitt passívt ásýndar. Þeir eru með borgaralega klædda "stikkera" sem ferðast um í litlum hópum og kippa ólátabelgjunum úr umferð. Í þessum mótmælum sá maður allskonar skríl sem lét eins og atburðurinn og samkoman væri eingöngu ástæða til að skemmta sér og ögra lögreglunni. Þarna voru hálfgerðir gjörningahópar sem gátu fengið útrás fyrir athyglisþörfina með því að blokkera götur, setjast niður á gatnamótum og þess háttar. Mestur fjöldinn var þó friðarsinnar sem vildu láta andstöðu sína á stríðsbrölti í ljós, en fyrir aðra var málstaðurinn bara að fá adrenalín kikk.

Ég varð líka vitni að því þegar mótmælendur stóðu andspænis lögreglunni, (stóð sjálfur einna fremst) sem lokaði hliðargötu við þinghúsið, þegar einhver bjáni fleygði slökkvitæki yfir mannfjöldann og í framrúðu lögreglubíls, algerlega upp úr þurru. Það var mikil mildi að það lenti ekki í höfðinu á hjálmlausum lögreglumanni. Að sjálfsögðu settu löggurnar upp hjálmanna og réðust að liðinu eftir nokkur varnarorð.

Krakkarnir sem nú berjast fyrir ungdomshúsinu hafa góðan málstað að berjast fyrir og eru flestir þessara krakka stórgáfuð og vel gerð. Í mörgum orðsendingum frá tryggum notendum hússins eru mótmælendur beðnir um að fara friðsamlega ella grafi þeir einfaldlega gröf hússins og möguleikanum á að að fá nýtt hús. Það hefur líka komið í ljós að allskonar skríll sá sér leik á borði og fékk útrás fyrir skemmdarfýsn sína án þess á nokkurn hátt vera tengt kúltúrnum í kringum ungdomshuset. Í þessu samhengi hefur það verið nefnt í umræðunni að færa kosningaréttin niður í 15 ára aldurinn til að gefa unglingunum kost á að hafa áhrifa á mótun samfélagsins með lýðræðislegum og friðsamlegum hætti. Athyglisverð hugmynd.!

Ég er farinn að hallast að því nú þegar eftirmálinn að þessu er í umræðunni að stífni borgaryfirvalda hafi að einhverju leyti valdið þessari stöðu sem nú er uppi. Borgarstjórinn hún Ritt Bjerregaard sem er þekkt fyrir stífni og eistreingingsleg vinnubrögð, hefur látið hafa það eftir sér að þessir krakkar munu ekki knébeygja hana til eins né neins. Hún segir að það sé ekki hlutverk borgarinnar að útvega þeim húsnæði. Að ekki sé nú talað um liðið sem keypti húsið og lóðina af borginni, brjálað trúarofstækislið sem ætlar að frelsa alla þjóðina, með afhommun og hreinsunareldi.

Það virðist vera nokkuð mikil samúð með þessum krökkum sem horfðu grátandi á þegar húsið var mulið mélinu smærra.Það sló mig að vissu leyti er ég sá þetta í fréttum að húsið var tákn þeirra um eitthvað óumbreytanlegt og stöðugt í annars brjálaðri veröld. Húsið var kannski land þeirra og þjóðerni.

föstudagur, mars 09, 2007

í körfunni

Það er nóg að gera hjá Karen Emblu í körfunni, nú eru leikir um hverja helgi og æfingar tvisvar í viku. Um síðustu helgi kepptu stelpurnar á heimavelli við Skjold fra Stevnsgade og áttu þrusu leik. Stelpurnar frá Skjold voru einu til tveimur árum eldri en okkar stelpur stóðu í þeim allan leikinn. Leikurinn tapaðist þó, endaði 24 - 16 fyrir Skjold.

Karen var í miklu stuði og og skoraði 3 stig í leiknum. Hún spilaði öflugan varnarleik og stal boltanum frá mótherjunum trekk í trekk og skapaði færi fyrir sitt lið. Sóknarleikurinn er allur að koma hjá henni og er hún farin að þora meiru. Fyrstu misserin fannst henni óþægilegt að fá boltan í sókninni, það fylgdi því svo mikil ábyrgð og hún óttaðist að mistakast, trúði hún pabba sínum fyrir.


En hún hefur fengið gott sjálfstraust og leggur sig alla fram, íþróttamanneskja fram í fingurgóma.




Svo er leikur á sunnudaginn í Ballerup, þar sem Jonstrup tekur á móti stelpunum í BK Amager.

þriðjudagur, mars 06, 2007

Saltkjöt og baunir

Á sunnudag fór stórfjölskyldan í heimboð til vinar okkar Halls og Hönnu á Solbakken. Þar var haldið uppá síðbúinn sprengidag, með saltkjöti, baunasúpu og öllu tilheyrandi. Það var mitt í örvæntingunni um að fara á mis við þessa árvissu átveislu þegar boðið kom. Hallur sem hefur verið með annan fótinn á Íslandi síðustu vikur bar þessi góðu björg í hús.

Það var að sjálfsögðu við manninn mælt, maður át eins og eitthvert bíafra-barn sem kemst í hlaðborð. Þegar maður sest við svona átu kastar maður öllu uppeldi og siðmenningu út fyrir lunninguna (ekki að það sé einhver stór byrði), það verður ekkert nema þú og þessir feitu kjötbitar sem skipta máli. Maður heyrir daufan óminn í fólkinu við borðið innan um eigið smatthljóð, og sjálfkrafa lítur maður upp, en forðast augnakontakt við sessunautana, svona rétt til að ótyggður bitinn standi ekki í manni. Og rétt til að staðesta viðveru sína hummar maður reglulega og kinkar kolli, en passar að missa ekki enibeitinguna við þessa helgu athöfn. Það er fyrst þegar manni sortnar fyrir augum að maður stoppar og gerir sér grein fyrir umhverfinu, þá veit maður að það er kominn tími á kaffi og meðþví.


Í sveitinni minni átu karlarnir yfirleitt fyrst, það var ekki í eðli þeirra að matartíminn væri einhver einhver samverustund. Heldur var þetta helg stund þar sem hið eilífa samband veiðimannsins og bráðarinnar var innsiglað með því að veiðimaðurinn neytti hennar. Að sinna börnum meðfram svona helgistund er afar óhentugt og ætti ekki að vera í höndum manna sem aldir voru upp á dreifbýlinu ;-)


Þetta var helg stund og skemmtileg. Þakkir til Halls og Hönnu.

sunnudagur, mars 04, 2007

Sorgleg sjón

Það var sorgleg sjónin sem blasti við okkur Karen Emblu er við hjóluðum upp í Jónshús í morgunsárið. Leið okkar lá um Christianshavn, rétt framhjá Christaniu. Við okkur blasti eyðilegging um allar trissur, malbikið á götunum var bráðnað á stórum svæðum og útbrennd bílhræin stóðu eins og daprir minnisvarðar um atburði næturinnar. Heilu húsalengjurnar fengu að finna fyrir skemmdarþörf "ungdómsins", þar sem allar rúður á jarðhæð voru brotnar. Verslanir höfðu verið eyðilagðar algerlega og granítsteinar lágu eins heyrúllur á túni hvert sem augað leit. Karen varð áhygjufull og gat ekki skilið af hverju svona lagað gerist í borginni okkar. "Gott að löggan hjálpar" sagði hún er við stóðum álengdar við dreggjar mótmæla næturinnar umkringda brynvörðum ökutækjum og virtist ekki hót ánægð með þessa freku "pönkara".



Brunalyktin var megn og sótið hafði litað framhliðar húsanna og yfirborð nágrenisins, allstaðar var brunnið drasl, grjót, glerbrot og hræ af ýmsu tagi. Ungdómurinn hefur verið iðin við kolann undanfarnar nætur, eru eitthvað eirðarlaus og pirruð greyin.!

Krakkarnir hafa ágætan málstað, þau vilja samastað og frelsi til að lifa lífinu utan hinna hefðbundnu borgaralegu lifnaðarhátta. Umburðarlyndi, margbreytileiki, sköpun, friður og mannúð eru þeirra slagorð. "Tek undir þetta allt saman, allt eitt af mikilvægustu hráefnum fyrir gott samfélag"! En þegar þessir krakkar taka upp á að leggja eigur borgarana í rúst af því að þau voru beðin um að flytja félagsmiðstöðina sína í stærra og betra húsnæði, þá dreg ég ætlunarverk og afstöðu í efa.

Ætli frekja og spennuþörf sé ekki ástæðan fyrir þessu öllu. Þeim finnst rosa gaman að láta mynda sig fyrir sjónvarpið þessum krökkum og láta handtaka sig, en svo gráta þau af ótta og einveru þegar í klefana er komið og þau átta sig á alvöru málsins, svo mikil er nú hin pólitíska sannfæring og fórnfýsi fyrir málsstaðinn.

Það er runnið af mér...

...sagði Halfdán Emilson bóndi við rangánna þegar haft var samband við hann í gær. Hann mundi óljóst eftir því að hafa verið að drekka heimabruggið og eitthvað ruglað í kerlingunni, sem var nýfarin frá honum. "einhver gredda í mér bara, kallaði hana hóru, ...held ég"!

Hann vaknaði svo á miðvikudaginn við að hópur alvopnaðra manna hlupu um á hlaðinu, hoppuðu á milli verkfæragámsins og heyrúllana og öskruðu hver á annan. "ég ætlaði út og bjóða þeim kaffi og spurja um erindið, þegar þeir réðust á mig. Mér sýndist ég sjá gamla skattstjórafíflið frá Ísafirði út undan mér, er ég lá með andlitið ofan í krapinu". Seldi honum kók í gamladaga, hann ætti að passa sig.

En nú er ég komin heim, nú eru það bara ég og skepnurnar. Læt þessar kerlingadruslur í friði.!

fimmtudagur, mars 01, 2007

Komment

Það hefur verið kostulegt að fylgjast með og lesa heimasíðuna hjá Jónínu Ben uppá síðkastið. Þar vellur svoleiðis uppúr henni munnræpan og skítkastið slettist frá henni í allar áttir. Jónína er einhver mesta örlaganorn í íslensku samfélagi síðustu árin, einhversskonar "accidental" aðalleikari í máli málanna. Hún hefur öðlast ótrúlegt tengslanet, trúlega þó mest í gegnum að hafa deilt bæli með Jóhannesi í Bónus. Þannig hefur hún engið innsýn í leynda heima ísl. viðskiptalífs.

Ég var komin á þá skoðun eftri að hafa lesið hjá henni nokkrar greinar á blogginu og séð hana í silfri egils að það væri kannski eitthvað á milli eyrnana á henni. En það virðist ekki vera annað en einhverskonar hefnigirni og ofmat á sínu hlutverki sem rekur hana áfram. Hún skrifar æðibunu-greinar með miklu offorsi þar sem hún dvelst á heilsuhæli í Póllandi. Ef ég hef lesið skrif hennar rétt þá er hún í einhverrri stólpípu- og afeitrunarmeðferð, sem skýra kannski þetta offors í henni. Ætli maður yrði ekki sjálfur pirraður ef maður væri í afeitrun, með tilheyrandi fráhvarfseinkennum og fengi svo troðið einhverjum lúður upp í rassgatið tvisvar á dag og látinn drulla í gegnum hann, jafnvel í ásýnd annarra.

En kerlingin hún Jónína lætur gammin geisa á bloggsíðunni með makalausan óhróður um nafngreindar persónur. Viðbrögðin láta svo ekki á sér standa og hellist yfir hana skömmunum. Hún sér yfirleitt að sér og annað hvort fjarlægir færslurnar, breytir þeim og styttir, og það eitt framkallar ekkert síðri viðbrögð frá lesendum.

Það er gaman að það sé einhver sem þorir að tjá sig óheft, svona eins og Ástþór Magnússon, þorpsfífl íslenskra fjölmiðlaumræðu var einumlagið.

miðvikudagur, febrúar 28, 2007

Eiki Rokkar

Djöfull líst mér vel á evróvisjón-lagið hans Eika, ég les úr lófa þínum. Eftir því sem heyri lagið oftar þá fæ ég það meir og meir inn undir húðina. Ég held bara að þetta lag eigi góða möguleika á toppárangri. Kröftugt og dramatíkst lag með mjög grípandi viðlagi, röddin hans Eika nýtur sín einstaklega vel.

Er ekki frá því að það ætti bara að syngja lagið á íslensku í lokakeppninni, það passar svo svaða vel.

Nú er bara og bíða að sjá hvort ekki aðrir evrópubúar séu sama sinnis. Þetta er ekta júrólag og kannski verður evróvisjón í Egilshöll vorið 2008, sama ár og við verðum ÓL meistarar í handbolta.

Kosningavor og kvenfrelsi

Það mun vora vel í íslenskum stjórnmálum fái langnesingurinn Steingrímur Joð einhverju um það ráðið. Ég hef fylgst nokkuð vel með umræðunni upp á síðkastið og ég held svei mér þá að tími hans sé kominn, gamla blaktröllið meiki það loks. St. joð er án efa einhver mesti stjórnmála- og ræðumaður íslands síðustu 3 áratugina ef frá er talið kannski Jón frænda Baldvin. Hann breytti rétt þegar hann ákvað að ganga ekki til fylgis við samfylkinguna og halda áfram að berjast fyrir betra samélagi á forsendum félagshyggju og mannúðar, trúr sinni sannfæringu.

En hann virðist þó ætla að falla í þá gryfju að setja "kvenfrelsi" efst á stefnuskránna hjá sér, fékk öruggleg 5 % út á það. Ég er ekki sammála þessu tali um kvenfrelsi, kynfrelsi og annaðslíkt. VG ættu að hlusta betur á Katrínu Jakobsdóttur og leggja þungan á að efla stéttabaráttu og fá þannig fram hið raunverulega réttlæti og jafnrétti. Ég get ekki séð að þessi barátta nokkura kerlinga i spakmannsspjörum og með risa-eyrnalokka komi nokkru til skila fyrir fiskverkakonurnar í landinu eða skúringakerlingar. Þessi jafnréttisbarátta eða kvenfrelsi er einungis ætlað að koma konum fyrir í ábyrgðar- og stjórnunarstöðum. Það er allavegana sá mælikvarði sem hinn dulbúni kvennalisti Samfylkingin notar til að hreykja sér af sínum árangri og markmiðum. Það er að sjálfsögðu gott og vel að þessi hlutur skuli leiðréttur að einhverju leyti, en ég minni á það að það eru einmitt þessar stöður sem gera mestar kröfur til eiginleika persónunnar en ekki til kynfæranna. Þess vegna er þessari baráttu beint á kolrangan vígvöll. Nær væri að nota kraftana til að rétta hag fólksins sem minnst ber úr bítum í öllu brjálæðinu á klakanum. Það gæti tilaðmunda gerst með að stórefla stéttarbaráttu og koma í veg fyrir arðrán.
Einhvern tíma sagði vís kona: "Það fer allt í bál og brand ef kerlingarnar fá að ráða of miklu."

þriðjudagur, febrúar 27, 2007

Lítið eitt um pólitík

Ég er alveg gáttaður á málefnafátækt og vandræðagangi Samfylkingarinnar, sem hreinlega hefur verið öskrað framan í umheiminn. Ingibjörg Sólrún er orðin álíka hrífandi leiðtogi og hver önnur úrill kerling, sem ekkert hefur til málanna að leggja en eitthvert nostalgíubull um kvenfrelsi og hungrið í völdin.

Mér hefur það alltaf þótt það undarlegt þegar fólk leggur upp með sömu taktík í politík og íþróttum. Já, þetta eru keimlíkir heimar á yfirborðinu en eðli þeirra eins ólíkt og hægt er. Menn skiptast í lið, og safnast saman við breiðtjöldin með glas í hönd á einhverja missera fresti og fagna hverri talningu úr hverjum dal eins og mörkum íslendinga í handboltalandsleik. En vísir menn hafa reynt að gera lítið úr þessum sigurmómenti og sagt að það sé og verði einungis upphaf og því beri að ganga hægt um gleðinnar dyr.

En samfylkingin hefur núna upp á síðkastið líst því yfir að markmiðið sé sigur, að þeim hungri í sigur. Sigurinn er orðið objektið í þeirra politík, og meðalið sem notað er allskonar er dægurskraut til að halda í fáu hræðurnar eins og kvenfrelsi, náttúruvernd, annað dautt og hitt stolið.

Já það er hart í ári þegar meira að segja oflátungarnir segja skilið við flokkinn og að hressa liðið í hópnum eru Mörður og Jóhanna.

Já, sjálf hefur forysta Samfylkingar fláð sig sjálfa inn að beini og eftir stendur hríslandi beinagrindin sem samanstendur einungis af þrá um völd.

mánudagur, febrúar 26, 2007

Weekenden

Um hádegið á föstudag fór ég til fundar við vin minn hann Hall hinn mikla Haukdæling. Erindið var að ræða smá bissness og viðra ýmis plön. Dagurinn tók snemma nokkuð aðra stefnu er Sigurður Arnar og vinur hans Ármann mættu einnig á svæðið. Þeir félagar voru nýkomnir úr flugi yir hafið til þess eins að sletta úr klaufunum hér í Köben um helgina. Aðal ástæða komu þeirra var að sjálfsögðu hið árvissa þorrablót íslendingafélagsins, sem haldið var á laugardagskvöldið. Fljótlega eftir að við höfðum sest við borðið týndi Hallur úr fórum sínum koníaksflösku og íslenskan ópal snafs, og þá var ekki atur snúið. Þegar að líða tók á daginn sneri húsbóndinn atur að vínskápnum og tók að bera á borð allskostar veigar sem skolað var niður af bestu lyst. Seinnipartinn var svo sóttur bjórkassi og þegar ekkert nema dreggjaranr voru eftir var farið á kollegibarinn og haldið áfram. Þar vorum við fram á nótt og þegar yfir stóð höfðum við setið að sumbli í um það bil sextán tíma og fyrstu 10 án þess svo mikið að standa upp frá sætunum nema þá kannski til að kreista eitrið úr kóbraslöngunni.

Eins og fjölskyldefeðra er siður þá reis maður úr rekkju eftir rétt rúmlega 2ja tíma svefn og þótt ótrúlega megi virðast var ég eins og nýsleginn túkall. ...svona fyrstu tímana alllavegana, en að sjálfsögðu kárnaði gamanið og ég játaði mig sigraðan og fór aftur í bælið.

Timburmennirnir voru óvenju vægir þetta skiptið ef mið er tekið af hinum annars hefðbundnu andnauð, skjálfta, sjóndepru, uppköstum og hausverk, sem er hversdagskostur hjá mér eftir hvert rennerí.

Frúin skellti sér á þorrablótið með stórum kvennahóp, og ég sat með börnin þrjú heima í kotinu. Það gekk nú ekki alveg þrautalaust, þar sem þau vöktu hvort annað allt kvöldið og ég hvorki með mjólkandi brjóst né móðurslegt umburðalyndi til að standa í svona löguðu. En allt gekk þó upp að lokum og við náðum að sofna í einni hrúgu.

Sunnudagsmorgunin var svo tekinn ókristilega snemma því Karen átti að spila körfubolta klukkan 9:00 og var mæting klukkan 8:00 í íþróttahúsinu. Karen átti enn einn stjörnuleikinn og var allt í öllu í varnarleiknnum hjá stelpunum. Hún átti líka góðan leik í sókninni og skoraði tvö stig. Stelpurnar töpuðu þó 24 - 16, en eins og áður eru þær að keppa við eldri stelpur og því er árangurinn náttúrulega frábær.

Svo leið sunnudagurinn í faðmi fjölskyldunnar, þar sem mamman þurti óvenju mikla hvíld eftir brölt næturinnar.

föstudagur, febrúar 23, 2007

Bókalestur

Nýverið lauk ég við að lesa bókina um hana Rögnu Aðalsteinsdóttur á Laugarbóli, Ljósið í djúpinu. Bókina fékk ég lánaða um daginn hjá Halli vini mínum og settist strax við lestur. Bókin greinir frá hinni miklu örlagasögu sem þessi kona hefur gengið í gegnum Hún missti tvö af börnum sínum í sitthvoru snjóflóðinu á vestfjörðum og tvö barnabörn í bílslysum. Sem barn missti hún móður sína og tvær systur og um tvítugt deyr faðir hennar. Svona heldur sagan áfram og segir frá þessari erfiðu lífsbaráttu í hinni deyjandi byggð innst í djúpinu. Ragna virðist samt sem áður komast í gegnum þessar ótrúlegu raunir af hörku og dugnaði þó að hún sé við það að bugast við áföllin sem ríða reglulega yfir.

Ég man alltaf eftir að það var mikið talað um þessa konu á heimilinu, pabbi þekkir hana nokkuð vel og Raggi bróðir var um tíma vinnumaður hjá henni sem og svo margir aðrir sem gekk illa að fóta sig í lífinu.

Reynir Traustason kemst nokkuð vel frá þessu verki þó svo að það vanti stundum þunga í textagerðina, sérstaklega þegar greint er frá þeim myrku örlögum er urðu sífellt á vegi Rögnu. Bókin ber þess merki að höfundur er blaðamaður og er oft eins og bókin sé eitt langt viðtal úr tímaritinu Mannlífi. En þar sem örlög Rögnu er það mögnuð kemur það ekki mikið að sök.

Góð bók þarna á ferðinni sem skilur mann hugsi eftir.

fimmtudagur, febrúar 22, 2007

Vetur konungur

Vetur konungur hefur heldur betur búið vel um sig hér í Danmörku þessa dagana. Danir sem undirbúa sig ekkert sérstaklega undir svona veður sætta sig sæmilega við það að samgöngur lamast nánast algerlega og eina trygga faratækið sé hinar tvær jafnfljótu stangir. Reiðhjólafólkið með stóra hjartað æðir samt sem áður af stað í hálkunni, en hjálmlaust af sjálfsögðu.

Ökutæki eru yfirhöfuð afskaplega illa búin fyrir svona færð og er bílarnir fastir um allar trissur á jafnsléttunni þar sem ekki er nema 5 cm jafnfallinn snjór. Hér í morgunsárið hjálpaði ég nokkrum nágrönum við að ýta bílum þeirra eftir að hafa fylgt Karen í skólann og verður bara að segjast að danir kunna þetta alls ekki. Tæknin sem þeir nota við að losa sig er bara að gefa í svo hvín í öllu og vona það besta. Ég hrópaði "láta bílinn rugga!", ja, ja jeg prøver! kölluðu ökumennirnir á móti án þess að nokkuð gerðist.

Ég eins og flestallir frónbúar kunna þessa tækni nokkuð vel, það var ekki svo sjaldan að maður var fengin að föstum bíl í sköflunum heima í víkinni. Ég man til dæmis að í fyrsta ökutímanum hjá Gunnari Halls í mars 1990 þá festum við bílinn tvisvar í ófærðinni. Þetta var ísavorið mikla þegar djúpið lokaðist. Já maður man þessi ósköp.

miðvikudagur, febrúar 21, 2007

Baugsmálið

Það er kostulegt að lesa fréttalutning af baugsmálinu í fjölmiðlum þessa dagana. Núna opinberast sá tittlingaskítur sem þarna um ræðir og það stefnir í eitthvert stærsta hneyksli í íslenskri réttarfarssögu. Mál sem verður viðfangsefni sagnfræðinga út alla þessa öld og jafnvel lengur.

Eftir því sem þeytivindan snýst hjá ákæruvaldinu og kjarninn skilst frá gumsinu kemur betur og betur í ljós að það er verið að eltast við hluti sem mætti gera út um yfir kafibolla á næstu bensínstöð.

Að íslenska ríkið sé búið að eyða upphæðum sem gætu brauðfætt meðalstórt Afríkuríki í að reyna sakfella menn fyrir að kaupa sér gólfsett og túr í rússibana fyrir fé fyrirtækis sem maður á og stjórnar. Höfuðið er svo rifið skömminni með því að draga fyllerísgreddu Jóns Ásgeirs inn í málið og gera saknæmt.

Það hefur kannski verið sagt áður en sjaldan er góð og sönn vísa of oft kveðin, þetta er helvítis sjálstæðislokkurinn sem þessu veldur sem svo mörgu ;-)

Veður skipast

Ég hafði varla sleppt orðinu í gærkvöldi yfir því hvað væri nú mikil blíða þegar "snjóstormurinn" brast á. En einmuna veðurblíða með vor í lofti heur leikið um okkur hér í Köben undanfarna vikuna. En í gærkvöldi byrjaði að snóa með tilheyrandi kulda og trekki. Þeir kalla þetta snjóstorm danirnir, nokkuð sem maður tengir við ofsaveðrin heima á vestfjörðunum í denn. En eftir næturlanga snjókomu er aðeins farið að grána á gangstéttunum. Ekki að ég sé að gera lítið úr þessu veðri því að kuldinn sem þessu fylgir er nístandi. Heimamenn halda samgöngum gangandi með því að bera óheyrilegt magn af salti á nánast allt yfirborð borgarinnar. Einhversstaðar las ég að þeir notuðu langmest af salti til hálkuvarnar í allri Evrópu, þrátt fyrir að margar náttúruvænni lausnir séu til staðar. Þetta hefur oft alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir gróðurinn og ekki síst sementið í gangstéttunum.

En að öðru. Nú er allt fastelavns dæmið yfirstaðið, krakkarnir búnir að belgja sig út af bollum og kreista pening og gotterí úr varnarlausum gamalmennum hverfisins. Óliver Breki náði þeim merka áfanga að verða tunnukóngur á vöggustofunni sinni og kom heim á mánudaginn með forláta kórónu sem hann fékk í verðlaun. Ætli æfingin sem hann fékk daginn áður í afmæli Karenar hafi ekki skipt sköpum.

Ég man vel eftir þessum tímabilum í minni æsku þegar maður fór út að maska. Þá gekk maður í hús að kvöldi bolludags yfirleitt klæddur sem einhver bófi og heimtaði einhver sætindi. þá voru nú ekki þessir verksmiðjuframleiddu búniingar til eða algengir, heldur safnaði maður saman einhverjum lörfum af foreldrum sínum og nuddaði einhverju sóti framan í sig. Ég man líka vel að eitt af þessum þremur kvöldum (mig minnir sprengidags) þá máttu stóru fantarnir hrekkja okkur sem minni voru. Á þessum tíma óttaðist maður ekkert meira heldur en Bogga Antons, Dóra heitinn Sigurlaugar, Þorlaug og Jonna. Fyrir þá hefur þetta eflaust verið skemmtilegasta kvöld ársins, þar sem þeir biðu með frysta snjóbolta á bak við snjóskafl tilbúnir að veita manni góðan marblett á lærið, og allt saman leyfilegt.

Síðast þegar ég maskaði var á menntaskólaárunum á skaganum. Þá fóru ég og Kalli Hallgrímss saman eftir kirkjubrautinni og gengum í nokkrar verslanir og veitingahús og sungum nokkur ættjarðarlög fyrir starsfólkið. Þá vorum við nú ekkert sérstaklega dulbúnir en án efa eðlislega hallærislegir, bæði til fara og í hátterni. Ég man eftir að það var nokkuð vel tekið í framtakið hjá okkur og bárum við til dæmis einn stóran skammt af frönskum úr bítum á veitingastaðnum Barbró.

Ég var að muna eftir því rétt í þessu að það var að sjálfsögðu sprengidagur í gær og ekkert saltkjöt til á heimilinu, hvur fjárinn, þar sofnaði maður á verðinum. Þetta hefur aldrei klikkað hingað til. Nú verður maður að fara á stúfana.

mánudagur, febrúar 19, 2007

Afmælisveislan

Karen hélt upp á 9 ára afmælið sitt í gær í blíðskaparveðri. Í gær var líka hinn opinberi Fastelavns dagur þar sem krakkar á öllum aldri klæða sig í búninga og lemja köttinn úr tunnunni. Afmælisveislan var þess vegna haldinn í anda dagsins, þar sem gestirnir komu í grímubúningum. Og að sjálsögðu var tunnan á staðnum full af gotteríi.



Stelpurnar voru í miklu stuði og geðu sért margt til gamans. Okkkur foreldrunum finnst þetta nú oft nokkuð stressandi, að hlaupa á eftir liðinu og sætta hinar mörgu hendur. En allt gekk nú vel og skipulagið hélst bara nokkuð vel. Reyndar voru gestirnir ekki nema 7 talsins sem gerði þetta allt viðráðanlegra. Einu sinni buðum við 17 gestum og þá fór allt úr böndunum og við reittum hár okkar heilan sunnudag.


Óliver var líka í feiknastuði í gervi pókemon-hetjunnar Pikatchu. Hann barði tunnuna með miklum tilþrifum og vildi helst ekki hleypa neinum öðrum að. En hann var bara nokkuð sáttur með nammipokann í lokinn. Óliver finnst fátt skemmtilegra en að elta stelpurnar sem koma í heimsókn til Karenar. Hann verður ástfanginn upp fyrir haus og líkar ekkert betra en að vera miðpunktur athygli stelpnanna. Það er einhvert strandamanneðli í honum piltinum.

sunnudagur, febrúar 18, 2007

Fastelavns riddarar

Hér á hinni marflötu Amager er siður að ríða fastelavn, leifar af hinni hollensku arfleið samfélagsins. Skrautlega búnir knapar ríða um göturnar á ekkert síður skrautlegum hestum og þiggja púns og snafsa af ákveðnum aðilum. Viðkomustaðirnir eru iðulega rótgróin fyrirtæki hér í nágreninu eða heimili einhverja leiðandi persónuleika. Lúðrasveitin ekur á undan í hestavagni og á viðkomustöðunum er lagið tekið. Yfirlett eru sungnir dönsk þjóðlög, ættjarðar og drykkjuvísur, að endingu hrópar fánaberinn ferfalt húrra fyrir gestgjafa og fjölskyldu hans

Við Óliver rákumst á hersinguna í gærmorgun er við vorum á leiðinni að sækja morgunbrauðið. Óliver gaulaði "gobbi, gobbi" og rauk í átt til hestana. Hann fékk að sjálsögðu að klappa hestunum og það ískraði í honum þegar þessir tröllvöxnu hestar tóku að narta í úlpuna hans.
Óliver var vel sáttur en þótti erfitt að horfa á eftir þessum nýju vinum sínum, þegar heim var haldið.

föstudagur, febrúar 16, 2007

Ófrýnilegir fylgdarmenn litla bangsans

Þeir voru heldur óátlitlegir fylgdarmenn litla sæta bangsans sem bönkuðu upp á hjá okkur fyrr í dag. Erindagjörðin var þó ekki hættuleg, einungis farið fram á sætindi eða peninga, helst bæði sögðu þær allar í einu. Fyrst sungu þær þó eitt lag fyrir okkur, og þegar sá söngur er búin er engrar undakomu auðið, góssið skal látið af hendi.

Við höfum ekki vanið okkur á að bjóða svona verum innfyrir þröskuldinn og heldur ekki á hverjum degi sem það stendur til boða. En í þetta sinn vorum við óhrædd því þarna voru Karen og vinkonur hennar, systurnar Nína og Jasmína, á ferðinni. Þær voru að "rasla", ganga í hús og heimta pening og gotterí. Þrátt fyrir að Fastelavn sé ekki fyrr en á sunnudag þá er best að vera sem fyrst á ferðinni segja þær, best að draga trollið þegar torfan er þéttust og algerlega óveitt úr henni, það veit á góða veiði.

Margt er gert til að hafa sem mest upp úr krafsinu, til dæmis hafði ein þeirra sett sokk í baukinn svo ekki heyrðist glingrið í myntinni, þannig áttu hún samúð auðskilna hjá íbúum hverfisins.

Við buðum að sjálfsögðu upp á smá aur og gotterí og héðan fóru þær reifar á vit ævintýrana. Stefnan var tekin á ríka hverfið handan götunnar, nú skildu þeir ríku blæða. En ekki er víst að gjamildin sé mikil allstaðar.

fimmtudagur, febrúar 15, 2007

Glókollurinn

Óliver fékk nokkra nýja bíla og bílahús með frá mömmu sinni og pabba í gær. Þó hann eigi yfirdrifið af dóti kallinn þá er takmarkað hvað hann leikur sér með. Honum finnst nú yfirleitt skemmtilegast að sópa öllu út á gólf og hlusta á hið yndislega hljóð sem því fylgir, svo er yfirleitt gamanið búið.

En á vöggustofunni hefur hann tekið algeru ástóstri við litlu bílana og bílahúsin. Þar dundar hann sér tímunum saman við þá iðju að keyra bílunum upp og niður brautirnar.


Ég og mamma hans ákváðum að það væri komin tími til þess að við fengjum að njóta þess hér heima að hann sitji og dundi sér og ekki síst hann sjálfur. Svo dótið var aldeilis kærkomið.

Ölæði

Það hefur runnið ölæði á danskinn. Þó ekki þannig að menn gangi umgöturnar með steytta hnefa og gólandi, heldur er æðið af öðrum og siðmenntaðari toga. Hinu ölþyrstu danir hafa snúið baki við fjöldaframleyddum Tuborg og Carslberg og láta sinn velstand í ljós með að kaupa bjóra sem bragð er af. Ég hefi kannski eingan velstand til að láta í ljós en hef hoppað með á ölduna samt sem áður. Ég geri það kannski vegna þess að það er sjaldan sem maður fær sér bjór og þá er skemmtilegra að bjórinn veitir manni dýpri upplifun en bara hlandspreng.

Þau eru kölluð micro bryggeri. Lítil brugghús þar sem handverk bruggarans er í aðalhlutverki og bjórinn yfirleitt ramleiddur eftir gamalli aðferð og í litlu magni. Fyrirbærið er orðið svo vinsælt að stóru fyrirtækin hafa stofnað sín eigin micro bryggeri um allar trissur og láta líta út fyrir að framleiðsaln fari fram í einhverjum bakgarði undir handleðislu gamals bruggmeistara og allt bruggað á eikartunnur. En hvað um það. Svo er algert hit að vera með bjórkynningar á mannamótum, þetta kostar sama og ekkert hérna þetta helv.!

Í gær keyptum við okkur nýjar tegundir frá brugghúsinu Jacobsen, (sem er stofnandi Carlsberg). Við keptum einn dökkan ale, einn hveitibjör og gamlan danskann. Og það verður að segjast að bjórinn var alveg prýðilegur, mátulega mikið bragð af honum.

Bjórinn sem var keyptur:

Bramley Wit: Hveiti bjóri, var bestur, ljós, mjög ferskur og með gott ávaxtarkennt eftirbragð.

Brown Ale: Mjög dökkur, með þykkum malt keim. Ekki fyrir dömur.!

Camomille Dubbel: Svolítið ramur og þungur í sér en prýðilegur í munni.

Bjórinn hefur fengið góðar viðtökur hér og þrátt fyrir að risinn Carlsberg standi á bak við framleiðsluna er honum vel tekið. Við getum vel mælt með þessari framleiðslu og er ekki að efa að ÁTVR taki við að selja afurðina fyrir svona vikulaun pólverja flaskann.!

Skál.


miðvikudagur, febrúar 14, 2007

og nafnið er...

...Nei, við ætlum ekki að uppljóstra það strax.

Það eru nokkrir aðilar í fjölskyldum okkar sem eru fljótir til og fluggáfaðir og á mettíma farnir að koma með allslags uppástungur. Ég efa heldur ekki að frænkurnar í firðinum leysi þrautina eða móðursystirin, ef ekki af hugviti þá af hinni margrómuðu færeysku þrjósku.!

En við viljum biðja þá sem leysa þrautina að halda því fyrir sig í smá tíma og allavega ekki pósta lausnina í "comments".

Ef þið finnið aðerðina við að leysa dulmálið þá blasir nafnið við. Höfundurinn að Da Vinci lyklinum hefur gert grein fyrir þessu dulmáli bæði í bókinni og annars staðar og er því um að gera að leggjast í smá rannsóknarvinnu.

Þið getið skrifað okkur póst á arngrimsson@hotmail.com ef þið hafið spurningar.