Um þessar mundir er ég að fást við hanna bæjarskipulag fyrir bæ í vestur-Noregi. Verkefnið er unnið inna skólans og erum við tveir saman um að vinna það, ég og frændi minn Jón Rafnar Benjamínsson. Verkefnið verður svo sent inn í stóra evrópska hönnunarkeppni Europan 9. Verkefnið er gríðarlega skemmtilegt og margir spennandi þættir í því, mörg úrlausnarefni.Bærinn heitir Odda og er innst inni í Hardangerfjorden, sem er þriðji lengsti fjörður í veröldinni. Odda er gamall iðnaðarbær, en var áður einhver mest sótti ferðamannastaður í skandinavíu og var sérstaklega vinsæll meðal evrópska kóngafólksins. Þarna bjó svo Arndís systir mín með börn og buru í ein átta ár.
Ég man vel þegar við hjónin keyrðum þangað með Karen Emblu jólin 2001 og hversu mikilfengelg sú upplifun var að sjá þetta landslag.
En verkefnið gengur í stuttu máli út á að endurgera og skipulaggja miðbæjarstæðið og hafnarsvæðið. Samhliða þeim verkenum vinnum við frændurnir að ritgerð um Landscape urbanism og leysum ákveðin teorísk úrlausnarefni.
Svo bíður lokaverkefnið handan við hornið......

2 ummæli:
Skemmtilegt.
Já ætli það ekki bara.
Skrifa ummæli